Varamenn taka þingsæti

14. fundur
Mánudaginn 18. október 1993, kl. 15:06:04 (316)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 18. okt. 1993:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska eftir því að vegna sérstakra anna 1. varaþm. Alþb. í Austurlandskjördæmi, Einars Sigurðarsonar, taki 2. varaþm., Þuríður Backman hjúkrunarfræðingur, sæti á Alþingi í fjarveru minni næstu tvær vikur.
    Þetta tilkynnist yður hér með, virðulegi forseti.
Hjörleifur Guttormsson, 4. þm. Austurl.``


    Þá er hér annað bréf, dags. 18. okt. í Neskaupstað:
    ,,Vegna sérstakra anna sé ég mér ekki fært að taka sæti Hjörleifs Guttormssonar á Alþingi næstu tvær vikur sem varaþm. Alþb. í Austurlandskjördæmi.
Virðingarfyllst, Einar Már Sigurðarson.``


    Þuríður Backman hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og er boðin velkomin til starfa.

    Þá eru tvö bréf til viðbótar. Hið fyrra er dags. 18. okt. 1993 og hljóðar svo:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að þar sem 1. varaþm. Sjálfstfl. í Norðurl. v., séra Hjálmar Jónsson, er erlendis, taki 2 varaþm. Sjálfstfl., Runólfur Birgisson skrifstofustjóri, Siglufirði, sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Vilhjálmur Egilsson, 5. þm. Norðurl. v.``


    Þá er hér annað bréf, dags. 16. október 1993:
    ,,Hæstv. forseti Alþingis.
    Það tilkynnist yður hér með að þar sem ég dvelst erlendis um þessar mundir á ég þess ekki kost að taka sæti á Alþingi að þessu sinni í forföllum Vilhjálms Egilssonar, hv. 5. þm. Norðurl. v.
Hjálmar Jónsson.``


    Kjörbréf Runólfs Birgissonar hefur verið rannsakað og samþykkt. Hann hefur hins vegar ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því samkvæmt 2. gr. þingskapa að vinna drengskaparheit að stjórnarskránni.