Skýrsla dómsmálaráðherra um málefni Happdrættis Háskóla Íslands og almannavarna

14. fundur
Mánudaginn 18. október 1993, kl. 17:31:31 (342)


[17:31]
     Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) :
    Hæstv. forseti. Vegna fyrirspurnar hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar til hæstv. dómsmrh. get ég upplýst að hann hefur ekki tekið neina ákvörðun um hvenær reglugerðin verður gefin út. Hún hefur ekki verið gefin út enn. Rauði krossinn og samstarfsaðilar Rauða krossins hafa óskað eftir fundi með hæstv. dómsmrh. Sá fundur verður í kvöld og ég geri ráð fyrir að staðan verði metin að þeim fundi loknum og við skulum vona að það takist samkomulag í þessu máli.