Umfjöllun um skýrslu frá Ríkisendurskoðun í menntamálanefnd

16. fundur
Þriðjudaginn 19. október 1993, kl. 13:42:29 (362)


[13:42]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
    Virðulegi forseti. Þar sem það hefur komið til tals hvernig afgreiðsla fjárln. hafi verið á þessu máli í sumar þá get ég upplýst það að nefndin fór yfir þessa skýrslu en tók ekki afstöðu til hennar á því stigi heldur ákvað að gera skýrsluna opinbera, vísa henni til allra þingmanna, til þingsins, og að fjölmiðlar gætu fjallað um hana frekar sem var gert í framhaldi af því. Að öðru leyti afgreiddi fjárln. ekki skýrsluna að mig minnir. Ég tel það mjög eðlilegt í framhaldi af því að fjárln. hafi vísað þessari skýrslu inn í þingið að menntmn. taki þetta mál upp þar sem málefni Ríkisútvarpsins heyra undir menntmn.