Lagaákvæði á sviði heilbrigðis- og tryggingamála vegna EES

18. fundur
Fimmtudaginn 21. október 1993, kl. 13:52:12 (518)


     Forseti (Kristín Einarsdóttir) :
    Forseti vill taka fram að andsvör er einungis hægt að veita við einstökum ræðum strax og þær hafa verið fluttar. Forseti lítur svo á að þetta hafi ekki verið andsvar við ræðu þeirri sem flutt var næst á undan eins og reyndar þingmaðurinn sjálfur sagði í upphafi máls síns þannig að það er ekki samkvæmt þingsköpunum að nota andsvar á þennan hátt.