[16:41]
Egill Jónsson :
Virðulegi forseti. Mér finnst rétt að það komi hér fram að landbn. fjallaði á fundi sínum sl. þriðjudag, og mun gera það aftur á morgun, sérstaklega um horfur í landbúnaði og hefur kvatt á sinn fund þá menn sem ættu að vera fróðastir um þau mál. Jafnframt hefur nefndin ritað Byggðastofnun bréf þar sem leitað er svara við þeirri þróun sem uppi er í þessum málum. Ég vænti að þegar þau svör liggja fyrir og niðurstaða úr nefndarstarfinu einnig þá muni þessi mál skýrast enn fremur. ( Gripið fram í: Hvernig eru horfurnar?)