Orsakir atvinnuleysis

20. fundur
Mánudaginn 25. október 1993, kl. 16:42:17 (578)


[16:42]
     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Hæstv. forseti. Vegna orða hv. fyrirspyrjanda vil ég taka fram að ég vil gjarnan stuðla að því að fyllri upplýsingar fáist heldur en ég hafði í höndum nú og koma þeim til þingsins þegar þær liggja fyrir og verða jafnframt við áskorunum búnaðarþings í því sambandi. Hins vegar mun ég ekki fjalla hér um önnur atriði sem voru fyrirspurninni algerlega óviðkomandi.