Varamenn taka þingsæti

35. fundur
Mánudaginn 15. nóvember 1993, kl. 15:01:00 (1288)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 11. nóv. 1993:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda til setu á þingi Sameinuðu þjóðanna og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Samtaka um kvennalista í Reykjavíkurkjördæmi, Guðrún J. Halldórsdóttir skólastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Kristín Ástgeirsdóttir, 18. þm. Reykv.``


    Guðrún J. Halldórsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.
    Þá hefur borist hér annað bréf, dags. 11. nóv. 1993:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda til setu á þingi Sameinuðu þjóðanna og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Sjálfstfl. í Suðurl., Drífa Hjartardóttir bóndi, Keldum, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.``
Árni Johnsen, 3. þm. Suðurl.``


    Drífa Hjartardóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.
    Þá er hér eitt bréf enn, dags. 11. nóv. 1993:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda til setu á þingi Sameinuðu þjóðanna og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Jónas Hallgrímsson framkvæmdastjóri, Seyðisfirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Halldór Ásgrímsson, 1. þm. Austurl.``


    Jónas Hallgrímsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.