[13:38]
Páll Pétursson :
Frú forseti. Ég beini máli mínu til hæstv. viðskrh. Í framhaldi af vali bankastjórnar Norræna fjárfestingarbankans á Jóni Sigurðssyni sem bankastjóra bankans nú á dögunum kom hæstv. viðskrh. í fjölmiðla, bæði í sjónvarp og eins í DV, og hélt því fram að ég teldi Jón Sigurðsson vanhæfan eða óhæfan seðlabankastjóra. Ég spyr: Hvaðan kemur hæstv. ráðherra þessi vitneskja og hvar finnur hann þessum orðum sínum stað?