Eftirlit með innfluttu fóðri

38. fundur
Miðvikudaginn 17. nóvember 1993, kl. 13:50:37 (1476)

[13:50]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Ég stend bara upp til að lýsa ánægju minni yfir því að þingmaðurinn hefur áréttað mjög sterklega að honum sé kunnugt um hvernig þessari ólöglegu starfsemi sé háttað og af þeim sökum er ekkert því til fyrirstöðu að grafast fyrir um rætur hennar.
    Að öðru leyti segi ég það að mér þykir alltaf vænt um það þegar ég sé alþýðuflokksmann sem í raun og veru ber landbúnaðinn fyrir brjósti.