Landbúnaðarþáttur GATT-samningsins

39. fundur
Fimmtudaginn 18. nóvember 1993, kl. 19:35:43 (1655)

[19:35]
     Jón Helgason (andsvar) :
    Herra forseti. Það eru að sjálfsögðu fjölmörg atriði sem koma fram í þessari umræðu sem ég hef ekki vikið að hér og ekki þar með sagt að ég hafi verið að draga í efa. En ég hlýt að mótmæla því að hitt hafi ekki verið rétt að hv. þm. hafi borið fram ósk um að hæstv. utanrrh. sæti áfram. En ég skal ekkert samt deila um það ( EgJ: Hann er nú hluti af ríkisstjórninni.) hversu lengi hv. þm. hefur haft það í huga. Að mínu mati væri best að sá tími væri sem allra stystur.