[16:27]
Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. svörin en það kom ekki fram í hans máli hvaða skattar aðrir það hefðu verið sem ríkið hefði lagt á í fyrra til að hafa upp í aðstöðugjaldsgreiðslurnar til sveitarfélaga og hitt, hvort þeir skattar yrðu síðan lagðir niður, jafnhliða þessu tekjuskattsþrepi upp á 1,5%.