Skattlagning aflaheimilda

44. fundur
Fimmtudaginn 25. nóvember 1993, kl. 19:15:43 (1948)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti kannast vel við það sem hv. 2. þm. Vestf. nefndi hér að það er almenn venja að reynt er að verða við óskum þingmanna um það að kalla til ráðherra. En það getur staðið þannig á að viðkomandi ráðherra sé ekki tiltækur og þess vegna er ekki alveg öruggt að það sé alltaf hægt að verða við slíkum óskum. Þetta er nokkuð sem forseti verður að meta hverju sinni.