[15:18]
Jón Kristjánsson :
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir að hreyfa þessu máli því satt að segja er þetta dálítið sérkennilegt mál eins og farið er með það í fjárlögunum. Það er rétt sem kemur fram hjá hæstv. forsrh. að reiknað er með að draga verulega úr umsvifum embættisins en samt segir í athugasemdum fjárlaga að ekki er þó gert ráð fyrir þessari breytingu í forsendum frv. Ég vildi spyrja hæstv. forsrh. hvað þetta þýddi. Það á að draga úr en samt er ekki gert ráð fyrir neinni breytingu.