[01:59]
Svavar Gestsson :
Virðulegi forseti. Það er mín skoðun og okkar alþýðubandalagsmanna að að sé þörf fyrir þessa fjármuni í Lánasjóði ísl. námsmanna. Við teljum að reglur þær sem framkvæmdar eru nú samkvæmt lögunum séu of þröngt túlkaðar. Ef þær væru túlkaðar með eðlilegum hætti, þá kæmi það í ljós að það væri þörf fyrir þessa fjármuni og reyndar meira til. Þess vegna erum við andvíg þeim niðurskurði sem hér er gerð tillaga um og við segjum nei.