Ferill 24. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 24 . mál.


24. Fyrirspurn


til fjármálaráðherra um tjón vegna gjaldþrota.

Frá Guðrúnu Helgadóttur.


    Hvert var tjón ríkissjóðs, ríkisbanka og sjóða í eigu hins opinbera vegna gjaldþrota á árunum 1990, 1991 og 1992?
    Upplýsingar óskast sundurliðaðar eftir fyrirtækjum.


Skriflegt svar óskast.