Ferill 425. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 425 . mál.


635. Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um forvarnir gegn bjórdrykkju.

Frá Önnu Ólafsdóttur Björnsson.



    Hvernig hefur verið staðið að átaki í forvörnum sem boðað var í kjölfar lögleiðingar bjórs á Íslandi 1. mars 1989? Hve miklu fé var varið til slíks átaks árin 1989–1993? Hverjir sáu um framkvæmd þessa átaks? Hefur verið lagt mat á árangurinn og ef svo er, hver er hann talinn vera?