Ferill 453. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 453 . mál.


683. Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um sölu jarða til ríkisins samkvæmt búvörusamningi.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



    Hvað hafa margir bændur, sem selt hafa frá sér framleiðslurétt í framhaldi af gerð núverandi búvörusamnings, óskað eftir því að ríkið keypti af þeim jarðirnar?
    Hefur ríkið orðið við öllum slíkum óskum?
    Hefur jarðasjóður fengið til þessara verkefna þá fjármuni sem gert var ráð fyrir samkvæmt viðauka við búvörusamning?


Skriflegt svar óskast.