Ferill 445. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 445 . mál.


1184. Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á l. um Happdrætti Háskóla Íslands, nr. 13 13. apríl 1973, með síðari breytingum.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



    Eftirfarandi breytingar verði á efnismálsgrein 1. gr.:
    Í stað orðanna „og á milli sölustaða“ í lok 1. málsl. komi: en ekki á milli sölustaða.
    Á eftir 1. málsl. komi tveir nýir málsliðir sem orðist svo: Óheimilt er að starfrækja happdrættisvélarnar á vínveitingastöðum. Kveða skal á um staðsetningu happdrættisvélanna og önnur skilyrði fyrir leyfisveitingu í lögreglusamþykkt viðkomandi sveitarfélags.