[15:03]
Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:
,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Ég hef ákveðið, samkvæmt tillögu forsrh., að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda miðvikudaginn 25. janúar 1995 kl. 15.
Gjört í Reykjavík, 24. janúar 1995.
Vigdís Finnbogadóttir.
_____________
Davíð Oddsson.
Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.``
Framhaldsfundir Alþingis hefjast því nú á ný. Hæstv. forseta, hv. alþingismönnum, svo og starfsmönnum Alþingis óska ég gleðilegs árs, þakka hið liðna, býð menn velkomna til þingstarfa og læt í ljós þá ósk og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.