Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
Borist hefur svohljóðandi bréf, dagsett 27. jan. 1995:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Framsfl. í Norðurl. e., Guðmundur Stefánsson framkvæmdastjóri, Akureyri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Guðmundur Stefánsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hann boðinn velkominn til starfa.