Afgreiðsla sjúkraliðafrv. úr nefnd

106. fundur
Laugardaginn 25. febrúar 1995, kl. 01:48:08 (5089)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Þá er umræðum um fundarstjórn forseta lokið og forseti vill geta þess til fróðleiks að þetta voru samtals 36 ræður sem fram fóru um fundarstjórn forseta og forseta sýnist ekki ástæða til að koma með neinar athugasemdir eða skýringar við þær spurningar sem fram komu um fundarstjórn forseta.