Tilraunastöð í jarðrækt á Reykhólum

19. fundur
Miðvikudaginn 26. október 1994, kl. 15:59:43 (822)

[15:59]
     Kristín Ástgeirsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil bara taka það fram að það sem fyrir mér vakir með þessum spurningum er einfaldlega að fá fram upplýsingar um það hvernig farið hefur verið með þessar eignir ríkisins, hvað um þær hefur orðið og hvað hefur fengist fyrir þær og hvernig þær eru nýttar. Ég á sæti í hv. landbn. og þar getum við að sjálfsögðu skoðað þessi mál. En í sjálfu sér er frv. einfalt og fljót afgreitt en það er samt ástæða til að kanna leiðinni hvernig þessum eignum hefur verið varið.