Skráning nafna í þjóðskrá

27. fundur
Mánudaginn 07. nóvember 1994, kl. 16:10:20 (1222)



[16:10]
     Pálmi Jónsson :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svör hans. Í þeim kemur fram að viðurkennt er að hér sé nokkuð gengið á svig við þá jafnræðisreglu sem nauðsynlegt er að hafa í heiðri. Hæstv. ráðherra lýsti því yfir að hann mundi beita sér fyrir því að leitað verði úrbóta á þessu vandamáli.
    Ég tel að hæstv. ráðherra hafi þar með tekið jákvætt undir þær athugasemdir sem hér hafa verið gerðar og hyggist beita sér fyrir því að úr verði bætt. Ég tel því að fyrirspurninni hafi verið að fullu svarað og ég þakka hæstv. ráðherra fyrir.