[14:54]
Svavar Gestsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir þetta svar. Ég tel að það sé alveg nægilega skýrt miðað við stöðu málsins og treysti því að við reynum að finna lausn á því máli í hv. menntmn. hvernig búið verður um hnútana að því er sérkennsluna varðar.