Framhaldsskólar

29. fundur
Þriðjudaginn 08. nóvember 1994, kl. 18:05:54 (1321)


[18:05]
     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Frammi fyrir þessum rismikla málflutningi stendur maður að sjálfsögðu agndofa. Þetta var svo gríðarlega málefnalegt og rökhelt og í raun og veru stórmerkilegt innlag til skólamálaumræðunnar á Íslandi. Ég verð því miður að hryggja hv. þm. með því að þær þúsundir ungmenna á Íslandi sem ekki finna sig í framhaldsskólakerfinu í dag munu skammt þrífast á þessum útúrsnúningum hennar hér.