[10:45]
Eyjólfur Konráð Jónsson :
Herra forseti. Mér kemur alveg á óvart að hér sé á ferðinni einhverjar skýrslur sem eru leyndarplögg og við þingmenn fáum ekki að sjá. Hv. þm. Einar K. Guðfinnsson er að spyrjast fyrir um þetta eins og ég er að gera. Mér finnst þetta ekkert smámál. Þetta er dulið í okkar flokki og verið að höndla við þetta einhvers staðar annars staðar. Ég tel það mjög vítavert og geri kröfu um það að þessi plögg verði lögð fram til þingsins.