Tilraunastöð í jarðrækt á Reykhólum

52. fundur
Fimmtudaginn 08. desember 1994, kl. 10:37:13 (2360)


[10:37]
     Frsm. landbn. (Egill Jónsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti landbn. Alþingis sem er á þskj. 309. Undir nál. hafa ritað nöfn sín auk mín Guðni Ágústsson, Gísli S. Einarsson, Kristín Ástgeirsdóttir, Eggert Haukdal og Jóhannes Geir Sigurgeirsson. Aðrir nefndarmenn voru ekki viðstaddir afgreiðslu nefndarinnar og er þeim það ekki láandi, svo ómerkilegt sem þetta málefni er.