Sameining Búnaðarfélags Íslands og Stéttarsambands bænda

52. fundur
Fimmtudaginn 08. desember 1994, kl. 10:45:24 (2364)


[10:45]
     Frsm. landbn. (Egill Jónsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Þetta frv. fjallar einvörðungu um samskipti ríkisvaldsins og landbúnaðarins að því er þessar breytingar varðar. Það er að sjálfsögðu í valdi þessara samtaka hvernig þau skipa sínum málum og það verður eftir sem áður í valdi bænda og húsmæðra í landinu að ráða fram úr því hver sest við stjórnvöl í þessum nýju samtökum. Það er ekki Alþingis að lögbinda neitt í þeim efnum.