Varaflugvöllur á Egilsstöðum

55. fundur
Mánudaginn 12. desember 1994, kl. 15:41:50 (2550)


[15:41]
     Gunnlaugur Stefánsson :

    Hæstv. forseti. Ég fagna þeirri yfirlýsingu hæstv. samgrh. að frá miðju næsta sumri verði Egilsstaðaflugvöllur orðinn fullgildur varaflugvöllur og þá búið að uppfylla allar þær kröfur sem verður að gera til slíks flugvallar þannig að hann geti gegnt hlutverki sínu. Það er mjög mikilvægt að þessi ákvörðun liggi fyrir vegna þess að þarna er þegar orðin mjög góð aðstaða og þess vegna ber að fagna því að það sé komin lausn á þessu máli og við getum horft fram til þess að starfsemin á flugvellinum verði komin í eðlilegar skorður ekki seinna en eftir mitt næsta sumar.