[23:14]
Egill Jónsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það hafa farið hér fram umræður um landbúnaðarmál og stöðu landbúnaðarins og m.a. hefur verið fjallað um álit landbn. sem gengið var frá í mikilli eindrægni í landbn. Fjárln. hefur fengið þetta álit. Hún var beðin um svar við þessa umræðu. Það svar liggur enn ekki fyrir. Það hefur verið talað um það í landbn. að á grundvelli þeirrar niðurstöðu sem fengist í fjárln., á grundvelli þess álits sem liggur nú fyrir og hefur raunar vakið mikla eftirtekt, bæði í þinginu og meðal þjóðarinnar, þá mundi landbn. ræða málin á nýjan leik. Og ég vona að landbn. gefist gott ráðrúm til þess að fjalla um þau mál og
taka sínar ákvarðanir á næstu dögum.