Fjárlög 1995

66. fundur
Fimmtudaginn 22. desember 1994, kl. 01:00:41 (3131)

[01:00]
     Kristín Ástgeirsdóttir (um atkvæðagreiðslu) :
    Virðulegi forseti. Á þskj. 471 er brtt. frá þeirri sem hér stendur og fleirum vegna Heyrnleysingjaskólans. Þar sem í ljós hefur komið í samtölum við hæstv. menntmrh. að búið er að leysa þetta mál og að þeirri tilfærslu yfir til Reykjavíkurborgar sem fyrirhuguð var á leikskóla Heyrnleysingjaskólans hefur verið frestað þá dreg ég þessa tillögu til baka.