Fjárlög 1995

66. fundur
Fimmtudaginn 22. desember 1994, kl. 01:45:50 (3143)

[01:45]
     Svavar Gestsson :
    Virðulegi forseti. Fyrir nokkrum dögum fór hér fram mjög ítarleg umræða um vandamál dreifbýlisverslunarinnar, að frumkvæði þingmanna Alþfl. Það er auðvitað mjög sérkennilegt við þær aðstæður sem þeir beittu sér mjög í umræðu af þessu tagi, aðallega hv. þm. Gunnlaugur Stefánsson, að lækka þessa aura til þess að kanna stuðningsaðgerðir fyrir dreifbýlisverslunina. Þess vegna legg ég til að menn hafni nú þessari lækkun og þess vegna bað ég um sérstaka atkvæðagreiðslu um þessa tillögu.