Fjárlög 1995

66. fundur
Fimmtudaginn 22. desember 1994, kl. 01:53:41 (3150)


[01:53]
     Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) (um atkvæðagreiðslu) :
    Hæstv. forseti. Ef það á að fara að skrá hér eftir þingmönnum það sem þeir kunna að hafa sagt þá vil ég að það sé rétt skráð eftir mér, að það er ekki rétt eftir mér haft sem hv. þm. sagði, að ég vildi ekkert með þetta mál hafa að gera. Það er ekki rétt eftir haft.