Lánsfjárlög 1995

69. fundur
Miðvikudaginn 28. desember 1994, kl. 13:50:47 (3326)


[13:50]
     Kristín Ástgeirsdóttir :
    Hæstv. forseti. Við meðferð og könnun þessa máls í hv. efh.- og viðskn. í gær kom í ljós að ýmis rök mæla með aðstoð við fyrirtækið Silfurlax en það verður að segjast eins og er að hér hefur verið þannig að málum staðið og flýtirinn sem er á þessu og það sem komið hefur í ljós í umræðunni sem fer fram er þannig að ekki verður við unað. Ég treysti mér ekki til þess að styðja tillöguna og ég ætla meira að segja

að ganga lengra, ég segi nei.