Samningur um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunar

72. fundur
Fimmtudaginn 29. desember 1994, kl. 20:38:49 (3455)


[20:38]

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
    Virðulegur forseti. Ég tel mikilvægt fyrir okkur Íslendinga að vera með sem stofnaðilar að hinni nýju alþjóðatollamálastofnun þó svo að vinnubrögð hæstv. ríkisstjórnar að undirbúningi málsins sé ekki til fyrirmyndar. Ég segi því já.
    Ég hlýt hins vegar, virðulegi forseti, að nota þetta tækifæri, af því að ég er kominn hér upp, til þess að bjóða hv. þm. Hjörleif Guttormsson velkominn í hjásetuklúbbinn við afgreiðslu mikilvægra utanríkismála.