Ferill 20. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 20 . mál.


20. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.

Flm.: Tómas Ingi Olrich, Einar K. Guðfinnsson, Árni R. Árnason,


Jóhannes Geir Sigurgeirsson, Ingi Björn Albertsson, Sólveig Pétursdóttir.



1. gr.


    2. mgr. 112. gr. laganna orðast svo:
    Nú verður ljóst þegar lýkur álagningu skatta, annarra en tekjuskatts manna, að gjaldandi hefur greitt meira en endanlega álögðum sköttum nemur og skal þá endurgreiða það sem ofgreitt var ásamt vöxtum fyrir það tímabil sem féð var í vörslu ríkissjóðs. Skulu vextir þessir jafnháir vöxtum sem greiddir eru af almennum sparisjóðsinnstæðum í Landsbanka Íslands á hverjum tíma. Komi í ljós við endurákvörðun skatta samkvæmt úrskurði yfir­skattanefndar eða samkvæmt niðurstöðu dómstóla að gjaldandi hafi greitt meira en endan­legri álagningu nemur skal endurgreiða það sem ofgreitt var ásamt vöxtum fyrir það tíma­bil sem féð var í vörslu ríkissjóðs. Skulu vextir þessir jafnháir vöxtum sem gjaldendum op­inberra gjalda er gert að greiða skv. 3. málsl. 1. mgr. þessarar greinar. Sama gildir þegar í ljós kemur við endurákvörðun á tekjuskatti manna að um ofgreiðslu hafi verið að ræða að öðru leyti en því að inneignarvextir reiknast aldrei fyrr en frá 1. júlí á álagningarári.

2. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Gjaldendum ber að greiða dráttarvexti af vangreiddum opinberum gjöldum, sbr. 1. mgr. 112. gr. laga um tekjuskatt og eignarskatt, en gjaldandi sem hefur greitt meira en sem nem­ur endanlega ákvörðuðum sköttum er hins vegar samkvæmt gildandi lögum bætt upp það tímabil sem fé hans var í vörslu ríkissjóðs með vöxtum sem miðaðir eru við vexti af al­mennum sparisjóðsinnstæðum í Landsbanka Íslands á hverjum tíma.
    Í þeim tilvikum þegar um ágreining er að ræða milli skattstjóra eða ríkisskattstjóra ann­ars vegar og gjaldenda hins vegar um opinber gjöld má vísa honum til yfirskattanefndar eða dómstóla. Úrskurði yfirskattanefndar má einnig vísa til dómstóla. Viðbótarálagning skattstjóra eða ríkisskattstjóra á opinberum gjöldum fer þó til innheimtu áður en fjallað hefur verið um hann hjá yfirskattanefnd eða dómstólum. Getur af þessum sökum myndast verulegt misræmi í meðferð vangreiddra opinberra gjalda annars vegar og ofgreiddra opin­berra gjalda hins vegar því að verði viðbótarálagning dæmd ólögmæt fær gjaldandi, sem greitt hefur álagninguna, jafnvel með dráttarvöxtum skv. 3. málsl. 1. mgr. 112. gr., ekki bætt það tjón sem hann varð fyrir vegna ólögmætrar álagningar þar sem hann fær aðeins almenna sparisjóðsvexti af því fé sem bundið hefur verið hjá ríkissjóði vegna álagningar­innar, auk þess sem hann kann að hafa orðið fyrir kostnaði af kæru málsins eða annarrar meðferðar þess.
    Ekki þykir fært að leiðrétta þetta misræmi með því að láta sömu reglur gilda almennt um vangreiðslur og ofgreiðslur á opinberum gjöldum þar sem hætta væri á að gjaldendur mynduðu hjá sér inneignir til að njóta slíkra vaxtakjara. Hins vegar er hér lagt til að sömu reglur gildi um vaxtagreiðslur af inneignum gjaldenda sem verða til við endurákvörðun áður ofálagðra gjalda vegna ólögmætrar álagningar eða viðbótarálagningar skattstjóra eða ríkisskattstjóra og vaxtatöku af vangreiddum opinberum gjöldum, en ekki í þeim tilvikum þegar inneign myndast af orsökum sem rekja má til gjaldenda sjálfra, svo sem mistaka þeirra við framtalsgerð.
    Mál þetta var lagt fram á 117. löggjafarþingi en hlaut ekki afgreiðslu í nefnd. Er málið nú endurflutt óbreytt.