Ferill 57. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 57 . mál.
57. Fyrirspurn
til sjávarútvegsráðherra um færslur aflaheimilda á fiskveiðiárinu 1993–94.
Frá Árna R. Árnasyni.
1 . Hvaða skipum var úthlutað aflaheimildum á fiskveiðiárinu 1993–94 af hverri bolfisktegund?
2 . Hver þeirra færðu á fiskveiðiárinu aflaheimildir til sín og frá sér?
3 . Hve mikið var fært og hve hátt hlutfall var það samanborið við úthlutaðar aflaheimildir til hvers þeirra?
Skriflegt svar óskast.