Ferill 170. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 170 . mál.


184. Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um tekjur og gjöld vatnsveitna í kaupstöðum árið 1993.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



    Hverjar voru tekjur vatnsveitna í hverjum kaupstað landsins á síðasta ári samkvæmt ársreikningi og hverjar voru þær tekjur samtals hjá öllum kaupstöðunum?
    Hver voru útgjöld vatnsveitna í hverjum kaupstað á síðasta ári samkvæmt ársreikningi, þ.e. samanlögð rekstrargjöld og fjárfesting, og hver voru útgjöldin samtals í öllum kaupstöðunum?
    Hver er mismunur tekna skv. 1. lið og útgjalda skv. 2. lið og hvað er mismunurinn hátt hlutfall af vatnsgjaldi ársins, hvort tveggja reiknað fyrir hverja vatnsveitu fyrir sig?


Skriflegt svar óskast.