Ferill 359. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 359 . mál.


582. Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um dragnótaveiðar.

Frá Sturlu Böðvarssyni.



     1 .     Hversu mikill var afli dragnótabáta tvö sl. fiskveiðiár eftir veiðisvæðum við landið?
     2 .     Hafa verið gerðar rannsóknir á áhrifum dragnótaveiða á lífríki sjávar?
     3 .     Hver er afstaða Hafrannsóknastofnunar og ráðherra til dragnótaveiða?
     4 .     Hyggst ráðherra beita sér fyrir takmörkun á dragnótaveiðum í Faxaflóa eða á öðrum svæðum við landið?