Alþjóðaviðskiptastofnunin

22. fundur
Miðvikudaginn 14. júní 1995, kl. 16:14:31 (860)


[16:14]
     Frsm. 3. minni hluta efh.- og viðskn. (Steingrímur J. Sigfússon) (andsvar) :
    Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir þessa yfirlýsingu, ég tel hana fullnægjandi. Ég tel að það sé í sjálfu sér eðlilegur framgangsmáti að það verði safnað upplýsingum um hvernig til tekst og lögð fram greinargerð á þinginu þannig að ríkisstjórn og Alþingi geti sameiginlega fjallað um það á haustdögum 1996 hvernig málin standa og hvort tilefni sé til lagabreytinga. Og ég kalla þess vegna aftur brtt. mína á þskj. 92.