Ferill 24. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
119. löggjafarþing. – 24 . mál.


54. Svar



dómsmálaráðherra við fyrirspurn Svavars Gestssonar um vínveitingastaði.

     1.     Hve margir staðir hafa nú vínveitingaleyfi
                   b.     á landinu öllu,
                   d.     í Reykjavík?

    Samkvæmt könnun, sem dómsmálaráðuneytið gerði um fjölda vínveitingahúsa í maí 1995, voru á landinu öllu 350 veitingahús með vínveitingaleyfi. Þar af voru 138 í Reykjavík.

     2.     Hve margir staðir höfðu vínveitingaleyfi 1980, 1985 og 1990
                   b.     á landinu öllu,
                   d.     í Reykjavík?


Ár     Allt landið     Reykjavík

31. desember 1980          42     18
31. desember 1985          104     43
31. desember 1990          206     91