Veiðar smábáta

Mánudaginn 26. febrúar 1996, kl. 15:05:32 (3231)

1996-02-26 15:05:32# 120. lþ. 95.1 fundur 198#B veiðar smábáta# (óundirbúin fsp.), MS
[prenta uppsett í dálka] 95. fundur

[15:05]

Magnús Stefánsson:

Virðulegur forseti. Snemma vetrar hófust viðræður milli sjútvrn. og Landssambands smábátaeigenda um lagfæringar eða breytingar á lögum um stjórn fiskveiða að því er varðar smábáta. Ég hef orðið var við að mikil óvissa hefur gripið um sig meðal smábátaútgerðarmanna um lyktir þessa máls. Því spyr ég hæstv. sjútvrh.: Hver er staða málsins og má vænta niðurstöðu á þessu þingi?