Forseti (Sturla Böðvarsson):
Eins og tilkynnt hafði verið hefst nú utandagskrárumræða. Málshefjandi er Ágúst Einarsson. Landbrh. verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 50. gr. þingskapa, 1. mgr., þ.e. hálftíma umræða. Efni umræðunnar er ákvörðun samkeppnisráðs um verðmyndun hjá Osta- og smjörsölunni og Mjólkursamsölunni og úrelding Mjólkursamlags Borgfirðinga.