Réttindi og skyldur kennara og skólastjórnenda grunnskóla

Fimmtudaginn 07. mars 1996, kl. 12:41:04 (3699)

1996-03-07 12:41:04# 120. lþ. 103.6 fundur 323. mál: #A réttindi og skyldur kennara og skólastjórnenda grunnskóla# frv. 72/1996, RG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 103. fundur

[12:41]

Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég árétta þá spurningu mína til menntmrh. Ef frv. um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna verður að lögum og lífeyrissjóðsmálum verður skipað með nýjum hætti á þessu vori og síðan kemur beiðni frá sveitarfélögunum í haust um að breyta þeim lögum, verður þá orðið við þeirri ósk?