Stjórn fiskveiða

Mánudaginn 15. apríl 1996, kl. 15:43:22 (4719)

1996-04-15 15:43:22# 120. lþ. 118.91 fundur 249#B stjórn fiskveiða# (umræður utan dagskrár), Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 118. fundur

[15:43]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Forseti vill upplýsa að 13 hv. þingmenn hafa kvatt sér hljóðs auk málshefjanda og hæstv. ráðherra sem gert er ráð fyrir að tali einnig í lokin. Ef allir nýta sér sinn fyllsta rétt að tala í tvær mínútur og aðeins eina ræðu, þá erum við komnir nokkuð fram yfir leyfilegan tíma og forseti biður því hv. þingmenn um að reyna að stytta mál sitt sem mest þeir mega þannig að allir geti komist að. Annars ganga einhverjir af.