Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Eins og ég hef margtekið fram og er afar auðvelt að sanna slitu hvorki félmrn. né ég þessum viðræðum. Það var ákvörðun formannafundar í Ölfusborgum sem haldinn var síðla í janúar á þessu ári. Ég væri ekki, herra forseti, að leggja til breytingar á þessum lögum ef ég teldi þær ekki til bóta.