Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Í tilefni af síðustu orðum hæstv. heilbrrh. langar mig að varpa fram lítilli spurningu. Hæstv. ráðherra segir: Það hefur enn þá enginn fengið leyfi samkvæmt nýju lögunum. En mig langar til þess að spyrja hana: Hefur einhver óskað eftir því?