Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Ég veit ekki hvort það tekur því að vera að þæfa þetta við hv. 13. þm. Reykv. lengur. En hv. 13. þm. Reykv. hefur lesið fjárlagafrv. með undarlegu hugarfari. Hún sér ekkert nema svart. Ég kenni í brjósti um hv. þm. fyrir alla þessa svartsýni og ég tel að frv. stuðli alls ekki að atvinnuleysi. Þvert á móti á það að bæta atvinnulíf og fjölga störfum í þjóðfélaginu.