Ásta B. Þorsteinsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Þetta skal vera stutt. Ég hef aldrei talið það vera mitt umboð að slíta samningaviðræðum og hef ekki gert neitt í þá áttina. Þar hefur ríkisstjórnin verið einfær um að hleypa málum í uppnám. Ég er að lýsa staðreyndum og ég vona að hæstv. félmrh. sýni þann manndóm að játa að þessi orð hafa fallið og þau eru ekki fleipur.