[15:37]
Drífa Sigfúsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég held að 10. þm. Reykn. hafi eitthvað misskilið orð mín. Ég ræddi ekki um að ég skildi ekki mismun á einkarekstri og ríkisrekstri. Ég nefndi að ég skildi ekki hvernig sami hv. þm. Kristján Pálsson geti bæði lagt til að ríkið dragi sig úr úr rekstrinum og sé með í rekstrinum þegar hann talar fyrir sama máli. Ég fæ ekki skilið að það sé verið að leggja til í sama málinu tvær aðskildar leiðir og tala fyrir þeim báðum samtímis, svo gott sem.